
Hilmar Lúther
Um þig - hvað heitirðu, aldur, í hvaða klúbbi ertu og hvað ertu að gera í lífinu?
Ég heiti Hilmar Lúther ég er 21 árs og er í Golfklúbbi Selfoss. Ég er með cerebral palsy og golf er stór hluti af mínu daglega lífi auk þess sem ég þjálfa golf.
Íþróttin - hvenær byrjaðir þú að stunda/æfa golf og hvernig kviknaði áhuginn?
Rétt áður en ég varð 18 ára var mér boðið í golf. Ég bjóst ekki við því að hafa gaman af því, en um leið og fyrsta góða höggið kom féll ég alveg fyrir íþróttinni. Ég hafði aldrei spilað golf áður.
Samstarfið - hvenær hófst þitt samstarf við Örninn og hvað hefur það gert fyrir þig?
Samstarf mitt við Örninn hófst haustið 2024. Það hefur verið frábært að fá stuðning frá þeim og hann hefur skipt mig miklu máli, sérstaklega þegar kemur að búnaði.
Hvað er í pokanum? ⛳️
Driver: Ping G425 max
Fairway wood / hybrid: TaylorMade Qi10 3 og 5 tré og TaylorMade QI35 4 Hybrid
Járn: Srixon ZXi7 og ZXi5
Fleygjárn: Cleveland RTZ
Pútter: Sink Ace 3
Bolti: Srixon Z Star Diamond
Uppáhaldskylfan í pokanum: Hvaða kylfa er í uppáhaldi hjá þér og af hverju?
Í uppáhaldi er það hundrað prósent 60 gráðurnar það er líklegast kylfan sem ég æfi mest með og stutta spilið finnst mér skemmtilegasti parturinn af golfi.
Eftirminnilegasti golfhringurinn: Hvaða golfhringur stendur mest upp úr hjá þér og af hverju?
Þegar ég spilaði Trump National Doral. Alveg sturlaður völlur og gaman að hafa strikað hann af bucket listanum og upplifað andrúmsloftið á PGA-velli.
Markmið - hvert er þitt markmið í íþróttinni og hvað er framundan hjá þér?
Næstu árin langar mig að keppa á G4D mótaröðinni sem er mótaröð fyrir golfara með fötlun og fer fram um allan heim. Stórt markmið hjá mér er að taka þátt í stórmótum eins og US Adaptive Open og The G4D Open.
Helstu afrek:
Líklega stoltastur af því hvað ég hef náð langt á stuttum tíma.


