
Ólíver Elí Björnsson
Um þig - hvað heitirðu, aldur, í hvaða klúbbi ertu og hvað ertu að gera í lífinu?
Ég heiti Óliver Elí Björnsson, er 17 ára og leik golf fyrir Golfklúbbinn Keili. Samhliða golfíþróttinni stunda ég nám í menntaskóla.
Íþróttin - hvenær byrjaðir þú að stunda/æfa golf og hvernig kviknaði áhuginn?
Ég byrjaði að stunda golf þegar ég var um 8 ára gamall og byrjaði að æfa 10 ára, áhugin byrjaði þegar ég fór holu í höggi á Álftanesvelli þegar ég var 9 ára.
Samstarfið - hvenær hófst þitt samstarf við Örninn og hvað hefur það gert fyrir þig?
Samstarfið mitt með Örninn byrjaði um jólinn árið 2024.
Hvað er í pokanum? ⛳️
Driver: Taylormade Qi4D (Ventus Black 6x)
Fairway wood / hybrid: Taylormade R7 Mini Driver (Kaili 70x), Srixon ZXiU 2 járn (Tour AdDi 90x)
Járn: Taylormade P7CB 4-PW (Dynamic Gold s400)
Fleygjárn: Taylormade MG5
Pútter: Odyssey Ai One Rossie
Bolti: ProV1X (Titleist)
Uppáhaldskylfan í pokanum: Hvaða kylfa er í uppáhaldi hjá þér og af hverju?
Uppáhaldskylfan mín er 2 járnið mitt, vegna þess að ég er öruggastur með henni.
Eftirminnilegasti golfhringurinn: Hvaða golfhringur stendur mest upp úr hjá þér og af hverju?
Eftirminnilegasti golfhringurinn minn er þegar ég spilaði í golfmóti í Portúgal og fór holu í höggi eftir að hafa verið +4 eftir 8 holur og endaði -1.
Markmið - hvert er þitt markmið í íþróttinni og hvað er framundan hjá þér?
Markmiðið mitt er að verða fyrsti íslendingurinn til að vinna risamót.
Helstu afrek:
Stærsti árangur minn á ferlinum er sigur á Opna breska meistaramótinu í golfi í unglingaflokki árið 2026.




